Lífið er draumur, láttu hann verða að veruleika

mánudagur, ágúst 28, 2006

Get ég haft herbergið með?

Það líður að því að ég geti farið að pakka. En hvað skal hafa með?? Úff ég veit að ég á eftir að vilja hafa herbergið eins og það leggur sig. Enda er hér um að ræða besta herbergi í heimi. En finnst ekki öllum herbergið sitt best í heiminum? En bráðum fæ ég nýtt herbergi og það í öðru landi. Líklega aðrar áherslur, annar stíll og allt nýtt og spennandi. En hvernig svo sem þetta allt verður veit ég að mér tekst að gera þetta svaka fínt. Svo má alltaf kaupa nokkra hluti ef það vantar eitthvað sem komst ekki í töskuna ;)
Núna fara dagarnir í að þjóta um bæinn og út um allt og reyna að koma öllu í lag og gera allt sem þarf að gera áður en maður fer. Svo er ég búin að kveðja þó nokkra en svo fæ ég ekkert að hitta kórskvísurnar áður en ég fer. Sé ykkur um jólin stelpur!

Danmörk nálgast óðfluga... aðeins vika þangað til ég verð komin á svæðið ;)

1 Comments:

  • Já, ég veit að þú átt örugglega eitt snyrtilegasta og huggulegasta herbergið sem ég veit um. En hvernig svo sem herbergið þitt í Lemvig lítur út núna þá getur þú gert það svona nokkurn veginn að þínu og það mun örugglega verða fínt. Það er sko ekki spurning !

    By Anonymous Nafnlaus, at 3:12 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home