Góðan daginn!
Hæ hó! Þá er maður vaknaður, ótrúlega morgunhress að vanda og tekin til við tölvuheiminn enn á ný. Það kæmi mér ekki á óvart ef ég fyki í dag. Það er svo hvasst hérna að trén rétt haldast ofaní jörðinni. Kannski ég geti bara látið mig fljúka heim til Íslands... eða hvað? Nei líklega gengur það ekki, ég hef nú þyngst um þónokkur kíló síðan ég kom svo líklega er ég hætt að fjúka ;) hehe.
Litli stóri bróðir minn skrifaði jólagjafaóskalistann sinn í eitt kommentið hénra. Mig langar nú svolíð að setja hann hérna inná því hann er alveg skuggalega líkt skrifaður og óskalistarnir mínir! Líklega hefur hann lært að biðja um ótrúelgustu hluti í jólagjöf rétt eins og systirin.
Skelfirinn - skilst að það sé dót á 17.000 í BT, talva, sjónvarp, psp leikjatalva, hvolpur, dverg hamstur, páfagaukur sem talar, iron maiden dót, fiskar.
Hehe já ég gef honum alveg örugglega páfagauk sem talar, ér er einmitt svo hrifin af fuglum! Hvolpur, hversu oft hefur það verið á óskalistanum mínum? Já líklega erum við álíka stórtæk í þessum skrifum þrátt fyrir að auðvita vitum við að fólk gefur okkur ekkert af þessum hlutum eða dýrum. Ég man nú ekki betur en að það hafi verið hestur á óskalistanum mínum síðan ég var pínulítil og ja ég held að ég hafi enn skrifað það síðustu jól! hehe svona er maður skrítinn ;)
En Leifa er komin, morgunhress rétt eins og ég svo við drífum okkur út í óveðrið og gellumst saman þangað til Lilja verður til svo við getum farið til Struer ;)
Allra bestu kveðjur.... Valborg Rut
6 Comments:
Eru þetta hælaháuskórnir þínir?
Þú ert hugrökk, ekki legg ég í svona.
By Abba blómabarn, at 8:22 f.h.
Já Abba þetta eru háhæluðu skórnir, kannski engir 20 sentimetra hælar en nokkrir sentimetrar eru STÓRT afrek ;) hehe ;)
By Nafnlaus, at 11:07 f.h.
Ekkert smá flottir! :)
By Nafnlaus, at 12:09 e.h.
Þræl flottir skór, hlakka til að að sjá hvað þú verður flott í þeim og nýja pilsinu líka !!
By Nafnlaus, at 1:13 f.h.
Já, óskalistinn hans Baldur var ansi erfiður til að vinna úr.... dálítið líkur þínum.....en endilega farðu nú að gera þinn....
By Nafnlaus, at 1:15 f.h.
Já þetta er allt að farað gerastí þessum óskalistadæmi, verst að ég er ekkert mjög góð í þessum efnum.
By Nafnlaus, at 1:17 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home