Það þarf líklega ekki að taka það fram að það er ausandi rigning. Maður verður svo tómur í svona veðri. Er virkilega komin með löngun til að skrifa eitthvað gáfulegt. En það kemur bara ekkert þegar veðrið er ekki að gera sig og maður hangir inni mest allan daginn. Talandi um að láta utanað komandi hluti stjórna sér. En svoleiðis er það nú bara. Og líklega er það einfaldlega þannig að hugurinn er virkari á veturnar. Líklega þarf hann líka að fá sumarfrí. Mikið yrði hann allavega þreyttur án þess.
Gerðu þér grein fyrir að ytra líf þitt og lifnaðarhættir eru endurspeglun á innra lífi þínu. Þegar friður er innra með þér geislar þú af friði út á við. Þegar hjarta þitt er barmafullt af kærleika, getur þú ekki komist hjá því að endurspegla og geisla þeim kærleika umhverfist þig. Þú getur ekki falið það sem er djúpt innra með þér því ytra ástand þitt er spegill af innra lífi þínu.
Bestustu kveðjur heim í góða veðrið :)
Valborg Rut

POQbum .com Graphics
Hver veit nema ég yrði svona í ræktinni..... hehe ;)
Ég sé þig í anda hlaupandi á tásunum í ausandi rigningu innan um baggarúllurnar og helst á handahlaupi líka.
SvaraEyðaEn hér eru 8° heiðskírt, klukkan er að verða 12 á miðnætti og fjölskyldan þín er stödd uppi á Húsavíkurfjalli í glampandi birtu og fegurð.
Afi var að tala við mömmu þína áðan og þá voru þau að koma úr Ásbyrgi á heimleið.
Stebba labbaði yfir Vaðlaheiði í dag með Hrafnhildi og var alsæl.
Nú er gamlafólkið að fara í háttinn
Knús frá ömmu.
Rosalega er þessi fjölskylda mín ferðaglöð, þau eru aldrei á heima! En það er nú svosem fínt að nota fríið sitt vel :)
SvaraEyðaVerst að ég hef aldrei á ævinni getað farið í handahlaup. Og líklega er ég orðin of gömul til að læra það núna, æ æ, hehe ;)